Hagnýtt meistaranám í sjávartengdri nýsköpun er nýstárlegt nám í samstarfi við Háskólann á Akureyri og Nýsköpunar-miðstöð Íslands, þar sem nemendur læra að skapa sér atvinnutækifæri. Sjávartengd nýsköpun er vítt skilgreind, enda á hún sér stað í fjölmörgum greinum: Sjávarútvegi og eldi, matvælaframleiðslu, í tæknigeiranum og orkuframleiðslu, en ekki síður í ferðamennsku, menningu og fleiru. Námið gefur nemendum innsýn í málefni hafs og stranda og í eðli og skilyrði nýsköpunar og reksturs örfyrirtækja. Hver og einn nemandi mótar einstaklingsmiðaða námsáætlun sem tekur mið af fagtengdum námskeiðum, rekstrartengdum nám-skeiðum og þróun nýsköpunarhugmyndar viðkomandi. Nemendur vinna nýsköpunarverkefni sitt í nánu samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og vestfirskt atvinnulíf. Þar sem um einstaklingsmiðað nám er að ræða er fjöldi nemenda takmarkaður. Að námi loknu eru nemendur vel í stakk búnir til að koma sínum eigin hugmyndum í framkvæmd, hvort sem það er með stofnun fyrirtækis eða innan starfandi fyrirtækis, en sú þjálfun sem nemendur öðlast í náminu nýtist einnig víða annarsstaðar í atvinnulífinu, t.d. í allri verkefnisstjórnun. Námið er því góður undirbúningur fyrir síbreytilegan vinnu-markað sem gerir kröfur til sjálfstæðra vinnubragða og hugmyndaauðgi.