18/02/2026
Til hamingju AÍH með hjartastuðtækið ykkar.
Vel gert Húsasmiðjan að velja Schiller Fred PA1 þar sem vönduð vara og áratuga reynsla fer saman.
❤️ Húsasmiðjan styrkir AÍH um hjartastuðtæki ❤️
Á aðalfundi Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar (AÍH) í gærkvöldi afhenti Húsasmiðjan félaginu hjartastuðtæki að gjöf. Öryggi skiptir máli – sérstaklega þar sem kraftur, hraði og fjölbreyttur hópur fólks kemur saman.
AÍH er öflugt og vaxandi félag sem hyggst halda 12 viðburði á keppnissvæði sínu í Hafnarfirði á þessu ári, en tímabilið stendur frá lok apríl og fram í miðjan september. Félagið hefur byggt upp sterkt ungliðastarf síðustu ár og gefur fjölda ungmenna á aldrinum 15–17 ára tækifæri til að kynnast akstursíþróttum – reynsla sem skilar sér í öruggari og betri ökumönnum út í umferðinni.
Á keppnisdögum safnast saman nokkur hundruð manns og því er mikilvægt að hafa rétta öryggisbúnaðinn á staðnum. Hjartastuðtækið verður staðsett í félagsheimili AÍH í Hafnarfirði og mun án efa nýtast vel.
Það var mikil ánægja meðal félagsmanna með framtakið og við hjá Húsasmiðjunni erum stolt af því að geta lagt okkar af mörkum til samfélagsins. 💙
Lindu Dögg Jóhannsdóttir, fráfarandi formaður AÍH, við hjartastuðtækinu fyrir hönd félagsins.
02/02/2026
24/12/2025
19/12/2025