TNS.IS

TNS.IS

Share

Vönduð M365 námskeið - Microsoft Teams, OneDrive, Planner, Outlook, Excel, Word og eða SharePoint.

26/01/2026

Outlook - Dagatal

Stundum þarf að finna tíma fyrir fund - Hægt er að senda pósta fram og til baka hvort eða hvenær viðkomandi er laus... en svo má líka:

1. Gera "reply" - Verður að opna í nýjum glugga (e. new window)
2. Skrifa einhvern haus eins og "Ég er laus á eftirfarandi dögum..."
3. Fara í "Insert" og velja "Calendar"
4. Hægt að velja á milli dagsins í dag, á morgun, næsta vika... eða velja daga
5. Einnig má stilla hvað sést - Laus, upptekinn eða nánari lýsingu
6. Velja "OK" og senda á viðkomandi...

Vissulega ekki fullkomið en kannski eitthvað auðveldara 😊

Microsoft Power Automate - TNS 29/11/2025

Greinar komnar inn á síðuna - Sjá t.d. efni um "Microsoft Power Automate"...

Microsoft Power Automate - TNS Power Automate er í grunninn „sjálfvirknivélin“ í M365 – pallur sem hjálpar þér að sleppa leiðinlegum, endurteknum verkum og láta tölvuna sjá um þau. Með einföldu viðmóti, draga-og-sleppa byggingu og tengingum við fjölda afurða (t.d. Teams, SharePoint, Outlook og Forms) get...

25/10/2025

CERT-IS (Netöryggissveit íslenskra stjórnvalda) varaði nýlega við "Svikaherferð í gegnum vefpóst" ásamt "Svikaherferð – ógreiddur rafmagnsreikningur" og þar á undan "Ný tegund svika – „Hæ mamma“"

Þessar fréttir má finna inn á vef CERT-IS með því að fara inn á "cert.is".

Eftirfarandi atriði ætti alltaf að hafa í huga:
1. Öruggt netfang – Fagaðilar mæla ekki með að smellt sé á hlekki t.d. í tölvupósti - heldur fara sjálf(ur) inn á vafra (e. chrome, edge, firefox...) og slá inn umrædda slóð.

2. Eyða eða tilkynna sendingar frá óþekktum aðilum – forðast ætti að svara ruslpósti (e. spam)... því fleiri sem svarað er því meri póstur berst. Hægt er að fara inn á síðu CERT-IS og tilkynna öryggisatvik.

3. Varúð í skilaboðum – sams konar varúð gildir um spjall- og SMS-skilaboðum. Veiði-sms („smishing“) eru vaxandi vandamál eins og margir kannast við.

Pössum okkur og þá sem eru í kringum okkur.

14/10/2025

Ávallt þegar við opnum Excel erum við að opna "Vinnubók" (e. workbook) - Engu breytir þó einhver deili eða sendi okkur eintak.

Hver vinnubók getur svo innihaldið margar síður (e. sheet) sem nýta má til aðgreiningar á efni.

Við ættum því að segja "Hefur þú ná að skoða Excel vinnubókina sem ég sendi þér?" eða "... Excel skránna... " en ekki "... Excel skjalið..." því um vinnubók er að ræða.

Gervigreind - Um hvað snýst gervigreind? 18/04/2023

Gervigreind - Vantar þig grunnnámskeið um gervigreind? Um hvað þetta snýst?

Gervigreind - Um hvað snýst gervigreind? Gervigreindar námskeið - Fyrir alla sem vilja kynnast gervigreind. Hvað er hún og hvað ekki - hverju eigum við von á?

10/04/2023

Ef þú fékkst textaskilaboð þar sem þú varst beðin um að senda farsímanúmerið þitt til baka er mikilvægt að gefa sér smá stund til að sannreyna áreiðanleika skilaboðanna áður en þú svarar. Svindlarar nota oft aðferðir sem þessar til að reyna að fá persónulegar upplýsingar, svo það er alltaf gott að fara varlega.

Ef þú ert ekki viss um uppruna skilaboðanna geturðu reynt að hafa samband við sendandann beint til að staðfesta að hann hafi í raun sent textann. Þú getur líka athugað hvort önnur merki séu um að skilaboðin gætu verið svindl, svo sem stafsetningarvillur eða óvenjulegt tungumál.

Ef þú ákveður að svara, vertu viss um að deila símanúmerinu þínu aðeins með einhverjum sem þú treystir. Það er alltaf betra að fara varlega þegar kemur að því að vernda persónuupplýsingarnar þínar.

08/04/2023
08/04/2023

Ef einhver sendir þér skilaboð, í gegnum "Facebook Messenger", og biður þig um að senda sér símanúmerið þitt þá eru miklar líkar á að um svik sé að ræða... aldrei svara svoleiðis skilaboðum í gegnum "Messenger"

02/04/2023

TNS - M365 ráðgjöf og kennsla

24/03/2023

M365 námskeið í fjarkennslu eða á staðnum - Kennt á íslensku eða ensku

Want your school to be the top-listed School/college in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address

Kópavogur
200KÓPAVOGUR